Grettisgata 22B

Verknúmer : BN050689

867. fundur 2016
Grettisgata 22B, bréf byggingarfulltrúa
Lagt fram bréf Guðjóns Ármannssonar hrl. fyrir hönd Maríu Óskarsdóttur Grettisgötu 22C, dags. 12. nóvember 2015, og barst embættinu þann 20. janúar 2016. Í bréfinu er þess farið á leit við Reykjavíkurborg "Umhverfis- og skipulagssvið" að hlutast verði til um að veggur sem reistur hefur verið "án leyfis" á lóðinni nr. 22B við Grettisgötu og gengur inn á umferðarkvöð á baklóð, verði fjarlægður.
Bréf skrifstofu sviðsstjóra dags. 8. mars 2016 fylgir erindinu.
Bréf skrifstofu sviðsstjóra dags. 8. mars 2016 samþykkt.

864. fundur 2016
Grettisgata 22B, bréf byggingarfulltrúa
Lagt fram bréf Guðjóns Ármannssonar hrl. fyrir hönd Maríu Óskarsdóttur Grettisgötu 22C dags. 12. nóvember 2015, en barst embættinu þann 20. janúar 2016. Í bréfinu er þess farið á leit við Reykjavíkurborg "Umhverfis- og skipulagssvið" að hún hlutist til um að veggur sem reistur hefur verið "´án leyfis" á lóðinni nr. 22B við Grettisgötu og gengur inn á umferðarkvöð á baklóð, verði fjarlægður.

Frestað.
Erindinu vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra.