Dugguvogur 23

Verknúmer : BN050673

868. fundur 2016
Dugguvogur 23, Breyta í íbúðarhúsnæði - rými 0305
Sótt er um leyfi til að innrétta íbúð í rými 0305 í iðnaðarhúsi á lóð nr. 23 við Dugguvog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. mars 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. mars 2016.
Gjald kr. 10.100

Synjað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. mars 2016.


578. fundur 2016
Dugguvogur 23, Breyta í íbúðarhúsnæði - rými 0305
Á fundi skipulagsfulltrúa 11. mars 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. mars 2016 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta íbúð í rými 0305 í iðnaðarhúsi á lóð nr. 23 við Dugguvog. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. mars 2016.
Gjald kr. 10.100

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags.14. mars 2016.

577. fundur 2016
Dugguvogur 23, Breyta í íbúðarhúsnæði - rými 0305
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. mars 2016 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta íbúð í rými 0305 í iðnaðarhúsi á lóð nr. 23 við Dugguvog.
Gjald kr. 10.100

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

866. fundur 2016
Dugguvogur 23, Breyta í íbúðarhúsnæði - rými 0305
Sótt er um leyfi til að innrétta íbúð í rými 0305 í iðnaðarhúsi á lóð nr. 23 við Dugguvog.
Gjald kr. 10.100
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.