Lindargata 34-36

Verknúmer : BN050616

862. fundur 2016
Lindargata 34-36, Niðurrif á mhl.01, mhl 02 og mhl.70
Sótt er um leyfi til að rífa mhl. 01, sjá erindi BN048898, merkt 0101 íbúð, 63,5 ferm., mhl. 02 merkt 0101 íbúð 30,8 ferm. og mhl. 70 merkt 0101, geymsla 12,7 ferm. á lóð nr. 34-36 við Lindargötu.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.