Hofteigur 36

Verknúmer : BN050583

866. fundur 2016
Hofteigur 36, Pallur
Sótt er um leyfi til að saga hurðargat niður úr glugga á austurhlið kjallaraíbúðar og byggja pall sbr. erindi BN025336 samþ. 30.7. 2002 við hús á lóð nr. 36 við Hofteig.
Meðfylgjandi er eignaskiptayfirlýsing sem sýnir 5,2 ferm. einkaafnotaflöt íbúðarinnar.
Gjald kr. 10.100

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


864. fundur 2016
Hofteigur 36, Pallur
Sótt er um leyfi til að setja hurðargat á austurhlið, bæði á 1. hæð og kjallara, og byggja pall og stiga niður í garð frá 1. hæð úr stáli og klætt með Steni, sbr. erindi BN025336 samþ. 30.7. 2002 við hús á lóð nr. 36 við Hofteig.
Gjald kr. 10.100

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.