Hljómalindarreitur

Verknúmer : BN050548

860. fundur 2016
Hljómalindarreitur, Tengigangur
Sótt er um leyfi til að byggja tengigang frá kjallara Klapparstígs 30 og Laugavegs 17 undir torgið að neðanjarðarbílageymslu á Smiðjustíg 4.
Stærð: 57,1 ferm., 162,8 rúmm.
Erindi fylgir heimild SEA fyrir notkun á borgarlandi ódagsett.
Gjald kr. 10.100

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar samningur SEA og Þingvangs um afnot af borgarlandi fyrir sorpskýli verður þinglýst á lóðirnar.