Sólheimar 23

Verknúmer : BN050475

860. fundur 2016
Sólheimar 23, Breyta gluggum
Sótt er um leyfi til að endurnýja glugga á tveimur hliðum, 1 og 2, og breyta þeim að hluta, sbr. erindi BN049212, á 14 hæða fjölbýlishúsi með 63 íbúðum á lóð nr. 23 við Sólheima.
Meðfylgjandi er óundirrituð fundargerð frá húsfundi dags. 26.11. 2015.
Gjald kr. 10.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.