Grettisgata 9

Verknúmer : BN050223

878. fundur 2016
Grettisgata 9, Breyting inni - hótel
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í íbúð á 4. hæð, innrétta gistiherbergi á 1. hæð og breyta íbúðum á 2. og 3. hæð í gistiheimili, sjá erindi BN048039, í tengslum við Hótel Frón í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 9 við Grettisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. desember 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2015.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


854. fundur 2015
Grettisgata 9, Breyting inni - hótel
Sótt er um leyfi til að innrétta sex íbúðir og til að innrétta stækkun á Hótel Fróni sem nemur fjórum herbergjum fyrir xx gesti, sjá erindi BN048039, í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 9 við Grettisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. desember 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2015.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2015.


565. fundur 2015
Grettisgata 9, Breyting inni - hótel
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. nóvember 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. nóvember 2015 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta sex íbúðir og fjögur herbergi fyrir xxx gesti sem stækkun á Hótel Frón, sjá erindi BN048039 í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 9 við Grettisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. desember 2015.
Gjald kr. 9.823

Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2015.

562. fundur 2015
Grettisgata 9, Breyting inni - hótel
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. nóvember 2015 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta sex íbúðir og fjögur herbergi fyrir xxx gesti sem stækkun á Hótel Frón, sjá erindi BN048039 í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 9 við Grettisgötu.
Gjald kr. 9.823

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

850. fundur 2015
Grettisgata 9, Breyting inni - hótel
Sótt er um leyfi til að innrétta sex íbúðir og fjögur herbergi fyrir xxx gesti sem stækkun á Hótel Frón, sjá erindi BN048039 í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 9 við Grettisgötu.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.