Guðrúnargata 8

Verknúmer : BN050159

849. fundur 2015
Guðrúnargata 8, Breyting - BN048976
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN048976, tröppur eru færðar inn á pallinn við hús á lóð nr. 8 við Guðrúnargötu.
Bréf frá hönnuði dags. 26. október 2015 fylgir erindi.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.