Klapparstígur 30

Verknúmer : BN049857

840. fundur 2015
Klapparstígur 30, Breytingar inni
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048637, m. a. stiga er snúið, stigi í verslun er færður og salarhæðir og gluggar breytast í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 30 við Klapparstíg.
Breyting á stærðum, minnkun: 5,3 ferm., 26,2 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


839. fundur 2015
Klapparstígur 30, Breytingar inni
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048637, m. a. breytist stærð stigahúss, stigi í verslun er færður og salarhæðir og gluggar breytast í íbúðar og atvinnuhúsi á lóð nr. 30 við Klapparstíg. Breyting á stærðum: XXX
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.