Bárugata 23

Verknúmer : BN049720

835. fundur 2015
Bárugata 23, Endurnýjun - BN045483
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN045483, þar sem veitt var leyfi til að byggja viðbyggingu við suðausturhlið einbýlishúss á lóð nr. 23 við Bárugötu.
Erindið var grenndarkynnt frá 8. febrúar til og með 20. mars 2013.
Stækkun: 43,1 ferm., 125 rúmm.


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að þinglýst verði yfirlýsingu um samruna eigna eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.