Mýrargata 2-8

Verknúmer : BN049703

835. fundur 2015
Mýrargata 2-8, Gasskápur og ræstingaskápur
Sótt er um leyfi til að koma fyrir gasskáp við norðurhlið og til að færa ræstiskáp til á 1. hæð hótels á lóð nr. 2-8 við Mýrargötu.
Gjald kr. 9.823
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.