Laugavegur 19-19B

Verknúmer : BN049618

835. fundur 2015
Laugavegur 19-19B, 19 - Tímabundin opnun - Svalir 4.hæð o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047130, m.a. að opna tímabundið yfir í Laugaveg 17 í kjallara og á 1. hæð, breyta gluggum og hurðum á 1. hæð og bæta við kvisti og svölum á bakhlið 4. hæðar húss á lóð nr. 19 við Laugaveg.
Erindi fylgir minnisblað frá Eflu um brunavarnir dags. 15. júní 2015.
Stækkun: xx rúmm.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


833. fundur 2015
Laugavegur 19-19B, 19 - Tímabundin opnun - Svalir 4.hæð o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047130, m.a. að opna tímabundið yfir í Laugaveg 17 í kjallara og á 1. hæð, breyta gluggum og hurðum á 1. hæð og bæta við kvisti og svölum á bakhlið 4. hæðar húss á lóð nr. 19 við Laugaveg.
Erindi fylgir minnisblað frá Eflu um brunavarnir dags. 15. júní 2015.
Stækkun: xx rúmm.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.