Kirkjuteigur 24

Verknúmer : BN049609

833. fundur 2015
Kirkjuteigur 24, Færanleg kennslustofa
Sótt er um leyfi til að koma fyrir kennslustofu, K113-F sem verður tengd við stofu K95-E við Laugarnesskóla á lóð nr. 24 við Kirkjuteig..
Stærð stofu K113-F: 80,2 ferm., 279,1 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.