Sólvallagata 67

Verknúmer : BN049593

833. fundur 2015
Sólvallagata 67, Viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja 3. hæða steinsteypta viðbyggingu, H-áfanga við Framnesveg vestanvert við Vesturbæjarskóla á lóð nr. 67 við Sólvallagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. júní 2015 fylgir erindinu.
Stækkun er: 1.341,4 ferm., 5.233,3 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


544. fundur 2015
Sólvallagata 67, Viðbygging
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. júní 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 3. hæða steinsteypta viðbyggingu, H-áfanga við Framnesveg vestanvert við Vesturbæjarskóla á lóð nr. 67 við Sólvallagötu Stækkun er: 1.341,4 ferm., 5.233,3 rúmm. Gjald kr. 9.823

Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Samræmist deiliskipulagi.

832. fundur 2015
Sólvallagata 67, Viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja 3. hæða steinsteypta viðbyggingu, H-áfanga við Framnesveg vestanvert við Vesturbæjarskóla á lóð nr. 67 við Sólvallagötu
Stækkun er: 1.341,4 ferm., 5.233,3 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.