Laugavegur 120

Verknúmer : BN049580

837. fundur 2015
Laugavegur 120, Stækkun á hóteli
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu, sjá erindi BN048554, fimm hæðir og kjallara og innrétta 127 herbergi fyrir 263 gesti í flokki V teg. hótel á lóð nr. 120 við Laugaveg.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 9. júní 2015, greinargerð vegna hljóðvistar, rýni vegna burðarvirkja dags. 9. júní 2015 og orkurammi dags. 6. júní 2015. Bílastæðabókhald: 6.619 ferm. er 50,9 bílastæði mínus 19 á staðnum er borga 31,9 stæði.
Viðbygging: 4.186,4 ferm., 13.507,1 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Skilyrt er að þinglýst verði yfirlýsingu um sameiningu eigna eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


835. fundur 2015
Laugavegur 120, Stækkun á hóteli
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu, sjá erindi BN048554, fimm hæðir og kjallara og innrétta 127 herbergi fyrir 263 gesti í flokki V teg. hótel á lóð nr. 120 við Laugaveg.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 9. júní 2015, greinargerð vegna hljóðvistar, rýni vegna burðarvirkja dags. 9. júní 2015 og orkurammi dags. 6. júní 2015.
Viðbygging: 4.186,4 ferm., 13.507,1 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Skipulagsferli ólokið.


834. fundur 2015
Laugavegur 120, Stækkun á hóteli
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu, sjá erindi BN048554, fimmm hæðir og kjallara og innrétta 127 herbergi fyrir 263 gesti í flokki V teg. hótel á lóð nr. 120 við Laugaveg.
[Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 9. júní 2015, greinargerð vegna hljóðvistar, rýni vegna burðarvirkja dags. 9. júní 2015 og orkurammi dags. 6. júní 2015.
Viðbygging: 4.186,4 ferm., 13.507,1 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Skipulagsferli ólokið.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


832. fundur 2015
Laugavegur 120, Stækkun á hóteli
Sótt er um leyfi til stækkunar, sbr. samþykkt erindi BN048554, hótels á lóð nr. 120 við Laugaveg.
[Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 9.6. 2015, greinargerð vegna hljóðvistar, rýni vegna burðarvirkja dags. 9.6. 2015 og orkurammi dags. 6.6. 2015.
Gjald kr. 9.823
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.