Þórsgata 9

Verknúmer : BN049463

829. fundur 2015
Þórsgata 9, Breyting úr stálgrind í steypu - (BN048702).
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048702 dags. 27.1. 2015 þannig að bílskúrinn verði steinsteyptur með bárujárnsklæddu þaki en ekki byggður úr stálgrind á lóð nr. 9 við Þórsgötu.
Gjald kr 9.823
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.