Bústaðavegur 7

Verknúmer : BN049453

835. fundur 2015
Bústaðavegur 7, Kæliraftur og dísel varaflstöð
Sótt er um leyfi til að setja upp tæknibúnað, sem felst í kælirafti og dísel varaaflsstöð með tengingu inn í hús, ásamt hljóðvarnar- og skjólgirðingu kring um hann, sbr. samþykkt stöðuleyfi BN049376, austan við hús Veðurstofunnar á lóð nr. 7. við Bústaðaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. júlí 2015 fylgir erindinu og samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 19. maí 2015
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


546. fundur 2015
Bústaðavegur 7, Kæliraftur og dísel varaflstöð
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. maí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að setja upp tæknibúnað, sem felst í kælirafti og dísel varaaflsstöð með tengingu inn í hús, ásamt hljóðvarnar- og skjólgirðingu kring um hann, sbr. samþykkt stöðuleyfi BN049376, austan við hús Veðurstofunnar á lóð nr. 7. við Bústaðaveg. Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 19.maí 2015. Gjald kr. 9.823. Grenndarkynning stóð frá 5. júní til 3. júlí 215. Engar athugasemdir bárust.

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


540. fundur 2015
Bústaðavegur 7, Kæliraftur og dísel varaflstöð
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. maí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að setja upp tæknibúnað, sem felst í kælirafti og dísel varaaflsstöð með tengingu inn í hús, ásamt hljóðvarnar- og skjólgirðingu kring um hann, sbr. samþykkt stöðuleyfi BN049376, austan við hús Veðurstofunnar á lóð nr. 7. við Bústaðaveg.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 19.maí 2015. Gjald kr. 9.823

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bústaðavegi 7a og 9.

828. fundur 2015
Bústaðavegur 7, Kæliraftur og dísel varaflstöð
Sótt er um leyfi til að setja upp tæknibúnað, sem felst í kælirafti og dísel varaaflsstöð með tengingu inn í hús, ásamt hljóðvarnar- og skjólgirðingu kring um hann, sbr. samþykkt stöðuleyfi BN049376, austan við hús Veðurstofunnar á lóð nr. 7. við Bústaðaveg.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 19.maí 2015
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.