Laugavegur 120

Verknúmer : BN049423

828. fundur 2015
Laugavegur 120, Breytingar á tæknirýmum
Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss á erindi BN048554 dags. 9.12. 2014 með breytingum sbr. BN049059 dags. 14.4. 2015, sem felast í að tækni- og inntaksrými í kjallara og geymsla til flokkunar á sorpi eru stækkuð og eldvarnahurð færð, einnig er brunakröfum breytt á 2., 3., 4. og 5 hæð í hóteli á lóð nr. 120 við Laugaveg.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts þar sem breytingar eru tíundaðar dags. 12.5. 2015.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.