Holtsgata 41B

Verknúmer : BN049415

833. fundur 2015
Holtsgata 41B, Lækka gólf
Sótt er um leyfi til að lækka hluta stofunnar þar sem hlaðinn kjallari var áður, til að varðveita hann að hluta og auka á blæbrigði hússins Stóra-Sel á lóðinni nr. 41B við Holtsgötu. Stækkun: 6,2 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


827. fundur 2015
Holtsgata 41B, Lækka gólf
Sótt er um leyfi til að lækka hluta stofunnar þar sem hlaðinn kjallari var áður, til að varðveita hann að hluta og auka á blæbrigði hússins Stóra-Sel á lóðinni nr. 41B við Holtsgötu.
Gjald kr. 9.823
Frestað.
Lagfæra skráningu.