Úlfarsbraut 126

Verknúmer : BN049410

827. fundur 2015
Úlfarsbraut 126, Breyta bráðabirgðastaðsetingu áhorfendapalla
Sótt er um samþykki á breytingum á nýlega samþykktu erindi, BN049154 dags. 31.3. 2015, sem felast í að áhorfendapallar eru færðir á suðurhlið vallar og fréttamannastúka og varamannaskýli á norðurhlið knattspyrnuvallar Fram á lóð nr. 126 við Úlfarsbraut.
Gjald kr. 9.823
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.