Hrefnugata 4

Verknúmer : BN049408

858. fundur 2016
Hrefnugata 4, Svalir - Endurnýjað leyfi
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á 2. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 4 við Hrefnugötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 30. september 2015 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. janúar 2016. Erindið var grenndarkynnt frá 9. desember 2015 til og með 6. janúar 2016. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


568. fundur 2016
Hrefnugata 4, Svalir - Endurnýjað leyfi
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. október 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á 2. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 4 við Hrefnugötu. Erindi var grenndarkynnt frá 9. desember 2015 til og með 6. janúar 2016. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


558. fundur 2015
Hrefnugata 4, Svalir - Endurnýjað leyfi
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. október 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á 2. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 4 við Hrefnugötu.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hrefnugötu 2 og 6 og Kjartansgötu 1, 3 og 5. Grenndarkynning mun ekki hefjast fyrr en að greitt hefur verið fyrir grenndarkynningu samkvæmt gr. 8.1 sbr. 12. gr. í Gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014. Gögn verða ekki grenndarkynnt fyrr en greiðsla hefur borist.

847. fundur 2015
Hrefnugata 4, Svalir - Endurnýjað leyfi
ssSótt er um leyfi til að byggja svalir á 2. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 4 við Hrefnugötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 30. september 2015.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Skipulagsferli ólokið.


846. fundur 2015
Hrefnugata 4, Svalir - Endurnýjað leyfi
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á 2. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 4 við Hrefnugötu.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdráttar dags. 7. nóvember 2012.


827. fundur 2015
Hrefnugata 4, Svalir - Endurnýjað leyfi
Sótt er dags. 12.5.2015 um leyfi til að setja svalir á húsið á 2. hæð skv. meðfl. teikningum, um er að ræða endurumsókn á áður samþykktum framkvæmdum þar sem byggingaleyfi er útrunnið og þarf því að endurnýja.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.