Bústaðavegur 130

Verknúmer : BN049399

830. fundur 2015
Bústaðavegur 130, (fsp) - Stækkun á söluskála
Spurt er hvort leyft yrði að byggja við eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af söluskála á lóð nr. 130 við Bústaðaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015.


Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.


541. fundur 2015
Bústaðavegur 130, (fsp) - Stækkun á söluskála
Á fundi skipulagsfulltrúa 22. maí 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. maí 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja við eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af söluskála á lóð nr. 130 við Bústaðaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015 eru ekki gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað.

539. fundur 2015
Bústaðavegur 130, (fsp) - Stækkun á söluskála
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. maí 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja við eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af söluskála á lóð nr. 130 við Bústaðaveg.

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

827. fundur 2015
Bústaðavegur 130, (fsp) - Stækkun á söluskála
Spurt er hvort leyft yrði að byggja við eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af söluskála á lóð nr. 130 við Bústaðaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.