Laufásvegur 27

Verknúmer : BN049334

846. fundur 2015
Laufásvegur 27, Breyting inni og stækkun
Sótt er um leyfi til að stækka stigahús, byggja sólskála með svölum á þaki við suðurgafl, hækka forstofubyggingu á norðurgafli og breyta innra skipulagi í tvíbýlishúsi á lóð nr. 27 við Laufásveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 20. mars 2015.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 18. júní til og með 16. júlí 2015. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 29,8 ferm., 85 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


837. fundur 2015
Laufásvegur 27, Breyting inni og stækkun
Sótt er um leyfi til að stækka stigahús, byggja sólskála með svölum á þaki við suðurgafl, hækka forstofubyggingu á norðurgafli og breyta innra skipulagi í tvíbýlishúsi á lóð nr. 27 við Laufásveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 20. mars 2015.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 18. júní til og með 16. júlí 2015. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 29,8 ferm., 85 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.


548. fundur 2015
Laufásvegur 27, Breyting inni og stækkun
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. júní 2015 þar sem sótt er um leyfi til að stækka stigahús, byggja sólskála með svölum á þaki við suðurgafl, hækka forstofubyggingu á norðurgafli og breyta innra skipulagi í tvíbýlishús á lóð nr. 27 við Laufásveg. Erindi var grenndarkynnt frá 18. júní til og með 16. júlí 2015. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 20. mars 2015. Stækkun: 29,8 ferm., 85 rúmm. Gjald kr. 9.823

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


542. fundur 2015
Laufásvegur 27, Breyting inni og stækkun
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. júní 2015 þar sem sótt er um leyfi til að stækka stigahús, byggja sólskála með svölum á þaki við suðurgafl, hækka forstofubyggingu á norðurgafli og breyta innra skipulagi í tvíbýlishús á lóð nr. 27 við Laufásveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 20. mars 2015. Stækkun: 29,8 ferm., 85 rúmm. Gjald kr. 9.823

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Laufásvegi 24, 25, 26 og 31 og Þingholtsstræti 35 og 37.

831. fundur 2015
Laufásvegur 27, Breyting inni og stækkun
Sótt er um leyfi til að stækka stigahús, byggja sólskála með svölum á þaki við suðurgafl, hækka forstofubyggingu á norðurgafli og breyta innra skipulagi í tvíbýlishús á lóð nr. 27 við Laufásveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 20. mars 2015.
Stækkun: 29,8 ferm., 85 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.
Grenndarkynningu ólokið.


830. fundur 2015
Laufásvegur 27, Breyting inni og stækkun
Sótt er um leyfi til að stækka stigahús, byggja sólskála með svölum á þaki við suðurgafl, hækka forstofubyggingu á norðurgafli og breyta innra skipulagi í tvíbýlishús á lóð nr. 27 við Laufásveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 20. mars 2015.
Stækkun: 29,8 ferm., 85 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 1.01, 1.02 og 1.03 dags. 28. apríl 2015.


541. fundur 2015
Laufásvegur 27, Breyting inni og stækkun
Á fundi skipulagsfulltrúa 15. maí 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. maí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að stækka stigahús, byggja sólskála með svölum á þaki við suðurgafl, hækka forstofubyggingu á norðurgafli og breyta innra skipulagi í tvíbýlishús á lóð nr. 27 við Laufásveg. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 20. mars 2015 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015.
Stækkun: 29,8 ferm., 85 rúmm. Gjald kr. 9.823

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015 samþykkt.

538. fundur 2015
Laufásvegur 27, Breyting inni og stækkun
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. maí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að stækka stigahús, byggja sólskála með svölum á þaki við suðurgafl, hækka forstofubyggingu á norðurgafli og breyta innra skipulagi í tvíbýlishús á lóð nr. 27 við Laufásveg.
Stækkun: 29,8 ferm., 85 rúmm. Gjald kr. 9.823

Vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra.

826. fundur 2015
Laufásvegur 27, Breyting inni og stækkun
Sótt er um leyfi til að stækka stigahús, byggja sólskála með svölum á þaki við suðurgafl, hækka forstofubyggingu á norðurgafli og breyta innra skipulagi í tvíbýlishús á lóð nr. 27 við Laufásveg.
Stækkun: 29,8 ferm., 85 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.