Lin29-33Vat13-21Skú12

Verknúmer : BN049245

823. fundur 2015
Lin29-33Vat13-21Skú12, Vatnsstígur 21 - Skjólþak - 1401
Sótt er um leyfi til að byggja skjólþak úr stáli og gleri yfir þaksvalir á íbúð 1401, mhl. 07, Vatnsstíg 21, á lóð nr. 12 við Skúlagötu.
Meðfylgjandi er samþykki stjórnarformanns fyrir hönd stjórnar húsfélags skv. reglum húsfélags.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.