Naustabryggja 31-33

Verknúmer : BN049138

824. fundur 2015
Naustabryggja 31-33, Tangabryggja 6-8 - Fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fjölbýlishús á fjórum hæðum með 35 íbúðum á áður samþykktan bílakjallara, sjá erindi BN048512, og verður Tangabryggja 6-8, mhl. 02, á lóð nr. 31-33 við Naustabryggju.
Erindi fylgir bréf frá brunahönnuði dags. 28. apríl 2015.
Stærð: Kjallari 665,7 ferm., 1. hæð 868,9 ferm., 2. og 3. hæð 931,5 ferm., 4. hæð 429,1 ferm.
Samtals A-rými: 3.873,8 ferm., 12.095,3 rúmm.
B-rými: 78 ferm.
C-rými: 83,4 ferm.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.




822. fundur 2015
Naustabryggja 31-33, Tangabryggja 6-8 - Fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fjölbýlishús á fjórum hæðum með 35 íbúðum á áður samþykktan bílakjallara, sjá erindi BN048512, og verður Tangabryggja 6-8, mhl. 02, á lóð nr. 31-33 við Naustabryggju.
Stærð: Kjallari 665,7 ferm., 1. hæð 868,9 ferm., 2. og 3. hæð 931,5 ferm., 4. hæð 429,1 ferm.
Samtals A-rými: 3.873,8 ferm., 12.095,3 rúmm.
B-rými: 78 ferm.
C-rými: 83,4 ferm.
Gjald kr. 9.823
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.