Hringbraut Landspítali

Verknúmer : BN049127

823. fundur 2015
Hringbraut Landspítali, Sjúkrahótel
Sótt er um leyfi til að byggja sjúkrahótel á fjórum hæðum með 75 herbergjum fyrir 96 sjúklinga, steinsteypt, einangrað að utan og klætt granítskífum, norðan byggingar kvennadeildar á lóð Landsspítalans við Hringbraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. apríl 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2015
Einnig fylgir yfirlit yfir bílastæði, fyrir, eftir og meðan á byggingu stendur og brunahönnun frá Verkís dags. í mars 2015.
Samtals A-rými: 4.258,2 ferm., 14.591,5 rúmm.
B-rými: 23,4 ferm.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


822. fundur 2015
Hringbraut Landspítali, Sjúkrahótel
Sótt er um leyfi til að byggja sjúkrahótel á fjórum hæðum með 75 herbergjum fyrir 96 sjúklinga, steinsteypt, einangrað að utan og klætt granítskífum, norðan byggingar kvennadeildar á lóð Landsspítalans við Hringbraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. apríl 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2015.
Erindi fylgir brunahönnun frá Verkís dags. í mars 2015.
Samtals A-rými: 4.258,2 ferm., 14.591,5 rúmm.
B-rými: 23,4 ferm.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


534. fundur 2015
Hringbraut Landspítali, Sjúkrahótel
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. mars 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja sjúkrahótel á fjórum hæðum með 75 herbergjum fyrir 96 sjúklinga, steinsteypt, einangrað að utan og klætt granítskífum, norðan byggingar kvennadeildar á lóð Landsspítalans við Hringbraut. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2015.
Erindi fylgir brunahönnun frá Verkís dags. í mars 2015. Samtals A-rými: 4.258,2 ferm., 14.591,5 rúmm. B-rými: 23,4 ferm. Gjald kr. 9.823

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2015.

821. fundur 2015
Hringbraut Landspítali, Sjúkrahótel
Sótt er um leyfi til að byggja sjúkrahótel á fjórum hæðum með 75 herbergjum fyrir 96 sjúklinga, steinsteypt, einangrað að utan og klætt granítskífum, norðan byggingar kvennadeildar á lóð Landsspítalans við Hringbraut.
Erindi fylgir brunahönnun frá Verkís dags. í mars 2015.
Samtals A-rými: 4.258,2 ferm., 14.591,5 rúmm.
B-rými: 23,4 ferm.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.