Blómvallagata 11

Verknúmer : BN049006

836. fundur 2015
Blómvallagata 11, Svalir - kvistur - skorsteinn o.fl.
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á austurhlið allra íbúða, koma fyrir eldvarnarhurðum milli stigahúss og íbúða, fjarlægja skorstein, byggja kvist á götuhlið og breyta innra skipulagi íbúðar á 4. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 11 við Blómvallagötu.
Erindi fylgir greinargerð um ástandsskoðun húss frá verkfræðistofunni Eflu dags. í júlí 2013, allsherjarumboð frá eiganda íbúðar 0302 dags. 2. febrúar 2011, samþykki meðeigenda ódagsett og bréf hönnuðar dags. 27. maí 2015.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. maí 2015, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. júlí 2015.
Erindið var grenndarkynnt frá 11. júní til og með 9. júlí 2015. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


547. fundur 2015
Blómvallagata 11, Svalir - kvistur - skorsteinn o.fl.
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. júní 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á austurhlið allra íbúða, koma fyrir eldvarnarhurðum milli stigahúss og íbúða, fjarlægja skorstein byggja kvist á götuhlið og breyta innra skipulagi íbúðar á 4. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 11 við Blómvallagötu. Grenndarkynning stóð frá 11. júní til og með 9. júlí 2015. Engar athugasemdir bárust.

Erindi fylgir ástandsskoðun húss frá verkfræðistofunni Eflu dags. í júlí 2013, allsherjarumboð frá eiganda íbúðar 0302 dags. 2. febrúar 2011, samþykki meðeigenda ódagsett og bréf hönnuðar dags. 27. maí 2015. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. maí 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015. Gjald kr. 9.823

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


541. fundur 2015
Blómvallagata 11, Svalir - kvistur - skorsteinn o.fl.
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. júní 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á austurhlið allra íbúða, koma fyrir eldvarnarhurðum milli stigahúss og íbúða, fjarlægja skorstein byggja kvist á götuhlið og breyta innra skipulagi íbúðar á 4. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 11 við Blómvallagötu.
Erindi fylgir ástandsskoðun húss frá verkfræðistofunni Eflu dags. í júlí 2013, allsherjarumboð frá eiganda íbúðar 0302 dags. 2. febrúar 2011, samþykki meðeigenda ódagsett og bréf hönnuðar dags. 27. maí 2015. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. maí 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015. Gjald kr. 9.823

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Ásvallagötu 15 og 17, Blómvallagötu 10, 10a, 12 og 13 og Brávallagötu 26.

829. fundur 2015
Blómvallagata 11, Svalir - kvistur - skorsteinn o.fl.
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á austurhlið allra íbúða, koma fyrir eldvarnarhurðum milli stigahúss og íbúða, fjarlægja skorstein byggja kvist á götuhlið og breyta innra skipulagi íbúðar á 4. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 11 við Blómvallagötu.
Erindi fylgir ástandsskoðun húss frá verkfræðistofunni Eflu dags. í júlí 2013, allsherjarumboð frá eiganda íbúðar 0302 dags. 2. febrúar 2011, samþykki meðeigenda ódagsett og bréf hönnuðar dags. 27. maí 2015. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. maí 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdráttar dags. 10. mars 2015.


827. fundur 2015
Blómvallagata 11, Svalir - kvistur - skorsteinn o.fl.
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á austurhlið allra íbúða, koma fyrir eldvarnarhurðum milli stigahúss og íbúða, fjarlægja skorstein og breyta innra skipulagi íbúðar á 4. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 11 við Blómvallagötu.
Erindi fylgir ástandsskoðun húss frá verkfræðistofunni Eflu dags. í júlí 2013, allsherjarumboð frá eiganda íbúðar 0302 dags. 2. febrúar 2011 og samþykki meðeigenda ódagsett.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. maí 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015.


538. fundur 2015
Blómvallagata 11, Svalir - kvistur - skorsteinn o.fl.
Á fundi skipulagsfulltrúa 8. maí 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. apríl þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á austurhlið allra íbúða, byggja kvist á vesturhlið, koma fyrir eldvarnarhurðum milli stigahúss og íbúða, fjarlægja skorstein og breyta innra skipulagi íbúðar á 4. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 11 við Blómvallagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015.
Erindi fylgir ástandsskoðun húss frá verkfræðistofunni Eflu dags. í júlí 2013, allsherjarumboð frá eiganda íbúðar 0302 dags. 2. febrúar 2011 og samþykki meðeigenda ódagsett. Gjald kr. 9.823

Jákvætt með þeim skilyrðum og leiðbeiningum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015.

537. fundur 2015
Blómvallagata 11, Svalir - kvistur - skorsteinn o.fl.
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. apríl þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á austurhlið allra íbúða, koma fyrir eldvarnarhurðum milli stigahúss og íbúða, fjarlægja skorstein og breyta innra skipulagi íbúðar á 4. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 11 við Blómvallagötu.
Erindi fylgir ástandsskoðun húss frá verkfræðistofunni Eflu dags. í júlí 2013, allsherjarumboð frá eiganda íbúðar 0302 dags. 2. febrúar 2011 og samþykki meðeigenda ódagsett. Gjald kr. 9.823

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

824. fundur 2015
Blómvallagata 11, Svalir - kvistur - skorsteinn o.fl.
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á austurhlið allra íbúða, koma fyrir eldvarnarhurðum milli stigahúss og íbúða, fjarlægja skorstein og breyta innra skipulagi íbúðar á 4. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 11 við Blómvallagötu.
Erindi fylgir ástandsskoðun húss frá verkfræðistofunni Eflu dags. í júlí 2013, allsherjarumboð frá eiganda íbúðar 0302 dags. 2. febrúar 2011 og samþykki meðeigenda ódagsett.
Gjald kr. 9.823
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.