Frakkastígur 26A

Verknúmer : BN048943

826. fundur 2015
Frakkastígur 26A, Veitingastaður
Sótt er um leyfi til að stækka kvisti, stækka bíslag til norðurs, stækka glugga, einangra og klæða að utan með borðaklæðningu, breyta innra skipulagi og innrétta veitingahús í flokki II fyrir 48 gesti í húsi á lóð nr. 26A við Frakkastíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. mars 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 25. febrúar 2015.
Stækkun: 3,5 ferm., 21,8 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


822. fundur 2015
Frakkastígur 26A, Veitingastaður
Sótt er um leyfi til að stækka kvisti, stækka bíslag til norðurs, stækka glugga, einangra og klæða að utan með borðaklæðningu, breyta innra skipulagi og innrétta veitingahús í flokki II fyrir 48 gesti í húsi á lóð nr. 26A við Frakkastíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. mars 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 25. febrúar 2015.
Stækkun: 3,5 ferm., 21,8 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


818. fundur 2015
Frakkastígur 26A, Veitingastaður
Sótt er um leyfi til að stækka kvisti, stækka bíslag til norðurs, stækka glugga, einangra og klæða að utan með borðaklæðningu, breyta innra skipulagi og innrétta veitingahús í flokki II fyrir 48 gesti í húsi á lóð nr. 26A við Frakkastíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. mars 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2015, umsögn Minjastofnunar Íslands fylgir.
Stækkun: 3,5 ferm., 21,8 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Höfundur hafi samband við embætti byggingarfulltrúa.


530. fundur 2015
Frakkastígur 26A, Veitingastaður
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. mars 2015 þar sem sótt er um leyfi til að stækka kvisti, stækka bíslag til norðurs, stækka glugga, einangra og klæða að utan með borðaklæðningu, breyta innra skipulagi og innrétta veitingahús í flokki II fyrir 48 gesti í húsi á lóð nr. 26A við Frakkastíg. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2015.
Stækkun: 3,5 ferm., 21,8 rúmm. Gjald kr. 9.823

Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2015.

817. fundur 2015
Frakkastígur 26A, Veitingastaður
Sótt er um leyfi til að stækka kvisti, stækka bíslag til norðurs, stækka glugga, einangra og klæða að utan með borðaklæðningu, breyta innra skipulagi og innrétta veitingahús í flokki II fyrir 48 gesti í húsi á lóð nr. 26A við Frakkastíg.
Stækkun: 3,5 ferm., 21,8 rúmm.
Gjald kr. 9.823

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.