Bergstaðastræti 86

Verknúmer : BN048925

821. fundur 2015
Bergstaðastræti 86, (fsp) - Breyta bílskúrshurð, síkka glugga o.fl.
Spurt er hvort leyft yrði að byggja við á bakhlið, síkka glugga, grafa frá kjallara og útbúa bílastæði við Barónsstíg við einbýlishús á lóð nr. 86 við Bergstaðastræti.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 24. mars 2015.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. mars 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2014.

Afgreitt.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2015 og umsagnar Minjastofnunar Íslands dags. 23. mars 2015.


533. fundur 2015
Bergstaðastræti 86, (fsp) - Breyta bílskúrshurð, síkka glugga o.fl.
Á fundi skipulagsfulltrúa 6. mars 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. mars 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja við á bakhlið, síkka glugga og grafa frá kjallara og útbúa bílastæði við Barónsstíg við einbýlishús á lóð nr. 86 við Bergstaðastræti. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 23. mars 2015.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. mars 2015 samþykkt.

530. fundur 2015
Bergstaðastræti 86, (fsp) - Breyta bílskúrshurð, síkka glugga o.fl.
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. mars 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja við á bakhlið, síkka glugga og grafa frá kjallara og útbúa bílastæði við Barónsstíg við einbýlishús á lóð nr. 86 við Bergstaðastræti.

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

817. fundur 2015
Bergstaðastræti 86, (fsp) - Breyta bílskúrshurð, síkka glugga o.fl.
Spurt er hvort leyft yrði að byggja við á bakhlið, síkka glugga og grafa frá kjallara og útbúa bílastæði við Barónsstíg við einbýlishús á lóð nr. 86 við Bergstaðastræti.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.