Hlíðarendi 4

Verknúmer : BN048884

817. fundur 2015
Hlíðarendi 4, (fsp) - Atvinnuhúsnæði og íbúðir
Spurt er hvort leyft yrði að byggja eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af fjögurra hæða húsi með atvinnuhúsnæði á 1. hæð og þremur íbúðarhæðum á lóð nr. 4 við Hlíðarenda.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. febrúar 2015 fylgir erindinu.

Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi samanber útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. febrúar 2015.


529. fundur 2015
Hlíðarendi 4, (fsp) - Atvinnuhúsnæði og íbúðir
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. febrúar 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af fjögurra hæða húsi með atvinnuhúsnæði á 1. hæð og þremur íbúðarhæðum á lóð nr. 4 við Hlíðarenda.

Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Samræmist deiliskipulagi.

816. fundur 2015
Hlíðarendi 4, (fsp) - Atvinnuhúsnæði og íbúðir
Spurt er hvort leyft yrði að byggja eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af fjögurra hæða húsi með atvinnuhúsnæði á 1. hæð og þremur íbúðarhæðum á lóð nr. 4 við Hlíðarenda.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.