Kambavað 1-3

Verknúmer : BN048839

818. fundur 2015
Kambavað 1-3, (fsp) - Breikka innkeyrslu o.fl.
Spurt er hvort leyft yrði að breyta innkeyrslu í bílgeymslu eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdráttum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 1-3 við Kambavað.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. mars 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. mars 2015 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 10. september 2015.

Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi samanber umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 3. mars 2015 og umsagnar Minjastofnunar Íslands dags. 10. september 2015.


530. fundur 2015
Kambavað 1-3, (fsp) - Breikka innkeyrslu o.fl.
Á fundi skipulagsfulltrúa 20. febrúar 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. febrúar 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta innkeyrslu í bílgeymslu eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdráttum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 1-3 við Kambavað. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. mars 2015 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur, dags. 11. júlí 2013.

Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. mars 2015 og Minjasafns Reykjavíkur, dags. 11. júli 2013.

528. fundur 2015
Kambavað 1-3, (fsp) - Breikka innkeyrslu o.fl.
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. febrúar 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta innkeyrslu í bílgeymslu eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdráttum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 1-3 við Kambavað.

Vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra.

815. fundur 2015
Kambavað 1-3, (fsp) - Breikka innkeyrslu o.fl.
Spurt er hvort leyft yrði að breyta innkeyrslu í bílgeymslu eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdráttum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 1-3 við Kambavað.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.