Bárugata 30

Verknúmer : BN048834

815. fundur 2015
Bárugata 30, (fsp) - Ofanábygging
Spurt er hvort leyft yrði að byggja ofan á eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af einbýlishúsi á lóð nr. 30 við Bárugötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. febrúar 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. febrúar 2015.

Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. febrúar 2015.


527. fundur 2015
Bárugata 30, (fsp) - Ofanábygging
Á fundi skipulagsfulltrúa 6. febrúar 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 3. febrúar 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja ofan á eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af einbýlishúsi á lóð nr. 30 við Bárugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. febrúar 2015.

Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. febrúar 2015.

526. fundur 2015
Bárugata 30, (fsp) - Ofanábygging
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 3. febrúar 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja ofan á eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af einbýlishúsi á lóð nr. 30 við Bárugötu.

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

813. fundur 2015
Bárugata 30, (fsp) - Ofanábygging
Spurt er hvort leyft yrði að byggja ofan á eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum af einbýlishúsi á lóð nr. 30 við Bárugötu
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.