Norðlingabraut 5

Verknúmer : BN048796

812. fundur 2015
Norðlingabraut 5, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta mörkum lóðarinnar Norðlingabraut 5, eða eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdráttum Landupplýsingadeildar dagsettum 21. 01. 2015.
Lóðin Norðlingabraut 5 (staðgr. 4.734.603, landnr. 198279) er 334 m² teknir eru 12 m² af lóðinni og bætt við óútvísað land (landnr. 221449) lóðin verður 322 m²
Sjá bréf frá Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 21. janúar 2015 þar sem farið er fram á að lóðamörk Norðlingabrautar 5 séu færð að stígkanti.


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.