Langholtsvegur 151

Verknúmer : BN048669

807. fundur 2014
Langholtsvegur 151, Hurð í kjallara breytt í glugga
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningu v/lokaúttektar, þar sem hætt var við að gera hurð úr kjallara út í garð, sjá erindi BN048302 í tvíbýlishúsi á lóð nr. 151 við Langholtsveg.
Gjald kr. 9.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.