Korngarðar 1

Verknúmer : BN048608

807. fundur 2014
Korngarðar 1, Breyting - á erindi BN048020
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN048020, leiðrétt byggingarlýsing, dreifistöð OR færð innar og minni háttar breytingar á innra skipulagi í húsinu á lóð nr. 1 við Korngarða.
Minnkar um 1,5 ferm., stækkar um 19,3 rúmm.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


806. fundur 2014
Korngarðar 1, Breyting - á erindi BN048020
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN048020, leiðrétt byggingarlýsing, dreifistöð OR færð innar og minni háttar breytingar á innra skipulagi í húsinu á lóð nr. 1 við Korngarða.
Minnkun í A : 1,5 ferm. Stækkun í A rúmm 19,3 rúmm.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.