Frakkastígur 23

Verknúmer : BN048601

808. fundur 2014
Frakkastígur 23, (fsp) - Stöðuleyfi fyrir smáhýsi
Spurt er hvort tímabundið stöðuleyfi fáist fyrir smáhýsi í stað færanlegs vagns þar sem seldur yrði matur og drykkur á lóð nr. 23 við Frakkastíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. desember 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. desember 2014.

Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. desember 2014.


521. fundur 2014
Frakkastígur 23, (fsp) - Stöðuleyfi fyrir smáhýsi
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. desember 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. desember 2014 þar sem spurt er hvort tímabundið stöðuleyfi fáist fyrir smáhýsi í stað færanlegs vagns þar sem seldur yrði matur og drykkur á lóð nr. 23 við Frakkastíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. desember 2014.

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. desember 2014.

520. fundur 2014
Frakkastígur 23, (fsp) - Stöðuleyfi fyrir smáhýsi
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. desember 2014 þar sem spurt er hvort tímabundið stöðuleyfi fáist fyrir smáhýsi í stað færanlegs vagns þar sem seldur yrði matur og drykkur á lóð nr. 23 við Frakkastíg.

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

806. fundur 2014
Frakkastígur 23, (fsp) - Stöðuleyfi fyrir smáhýsi
Spurt er hvort tímabundið stöðuleyfi fáist fyrir smáhýsi í stað færanlegs vagns þar sem seldur yrði matur og drykkur á lóð nr. 23 við Frakkastíg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.