Skútuvogur 1

Verknúmer : BN048586

807. fundur 2014
Skútuvogur 1, 1G - Breyting inni, úti
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN044485, breytt er innra fyrirkomulag á 3. hæð og komið fyrir gasgeymslu utan við húsi á lóð nr. 1G við Skútuvog.
Bréf frá hönnuði dags. 5 desember 2014, samþykki Faxaflóahafna sf. dags. 5. desember 2014 og samþykki frá formanni húsfélags dags. 15. desember 2014 fylgja erindi.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


805. fundur 2014
Skútuvogur 1, 1G - Breyting inni, úti
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN044485 þannig að breytt er innra fyrirkomulag á 3. hæð hússins á lóð nr. 1G við Skútuvog.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.