Þórsgata 10

Verknúmer : BN048571

810. fundur 2015
Þórsgata 10, Breyting - br. BN047250
Sótt er um leyfi til að koma fyrir vegg á lóðamörkum að húsi nr. 12 og breyta innra skipulagi á 2. hæð í mhl. 01, breyta herbergi í vinnustofu og loka að stigagangi í húsi á lóð nr. 10 við Þórsgötu.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa á Þórsgötu 12 áritað á uppdrátt.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


805. fundur 2014
Þórsgata 10, Breyting - br. BN047250
Sótt er um leyfi til að koma fyrir vegg á lóðamörkum að húsi nr. 12 og breyta innra skipulagi á 2. hæð í mhl. 01, breyta herbergi í vinnustofu og loka að stigagangi í húsi á lóð nr. 10 við Þórsgötu.
Gjald kr. 9.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.