Skógarhlíð 10

Verknúmer : BN048552

807. fundur 2014
Skógarhlíð 10, Stækkun á gistiheimili
Sótt er um leyfi til að fjölga gistirýmum úr 90 í 118 með því að innrétta tvö herbergi í rými 0101, einnig er útihurð breytt í glugga og snúið hurð á 2. hæð þannig að hún opnist inn í anddyri í húsi á lóð nr. 10 við Skógarhlíð.
Samþykki meðeigenda ódagsett fylgir erindi.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


804. fundur 2014
Skógarhlíð 10, Stækkun á gistiheimili
Sótt er um leyfi til að fjölga gistirýmum úr 90 gesti í 118 gesti með því að breyta geymslurými 0101 í tvö herbergi, breyta útihurð í glugga snúa innihurð á 2. hæð þannig að hún opnist inn í anddyri í húsinu á lóð nr. 10 við Skógarhlíð.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.