Túngata 7

Verknúmer : BN048536

808. fundur 2014
Túngata 7, Breyta vegg - girðing
Sótt er um leyfi til að breyta lóðaveggjum og setja upp sérsmíðaða öryggisgirðingu með rafdrifnu hliði ofan á lóðarvegginn á lóð nr. 7 við Túngötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. desember 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. desember 2014.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


521. fundur 2014
Túngata 7, Breyta vegg - girðing
Á fundi skipulagsfulltrúa 28. nóvember 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. nóvember 2014 þar sem sótt er um leyfi til að lækka núverandi lóðaveggi og hækka lóðarveggi til suðurs, steypta nýjan vegg/undirstöðu á vesturenda lóðar svo er fest ofan á lóðarveggin sérsmíðuð öryggisgirðing með rafdrifnu hliði á lóð nr. 7 við Túngötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. desember 2014.
Gjald kr. 9.500

Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 17. desember 2014.

518. fundur 2014
Túngata 7, Breyta vegg - girðing
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. nóvember 2014 þar sem sótt er um leyfi til að lækka núverandi lóðaveggi og hækka lóðarveggi til suðurs, steypta nýjan vegg/undirstöðu á vesturenda lóðar svo er fest ofan á lóðarveggin sérsmíðuð öryggisgirðing með rafdrifnu hliði á lóð nr. 7 við Túngötu.
Gjald kr. 9.500

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

805. fundur 2014
Túngata 7, Breyta vegg - girðing
Sótt er um leyfi til að breyta núverandi lóðaveggjum og setja upp sérsmíðaða öryggisgirðingu með rafdrifnu hliði ofan á lóðarvegginn á lóð nr. 7 við Túngötu.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Er til umfjöllunar hjá skipulagsfulltrúa.


804. fundur 2014
Túngata 7, Breyta vegg - girðing
Sótt er um leyfi til að lækka núverandi lóðaveggi og hækka lóðarveggi til suðurs, steypta nýjan vegg/undirstöðu á vesturenda lóðar svo er fest ofan á lóðarveggin sérsmíðuð öryggisgirðing með rafdrifnu hliði á lóð nr. 7 við Túngötu.
Gjald kr. 9.500
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.