Hringbraut Landsp.

Verknúmer : BN048492

803. fundur 2014
Hringbraut Landsp., Eiríksgata 36 - Bráðabirgða skrifstofuhúsnæði
Sótt er um leyfi til að byggja skrifstofurými til bráðabirgða, mhl. 42, úr gámaeiningum á þrem hæðum með valmaþaki við norðurhlið tengibyggingar milli E og G álmu Landspítalans á lóð nr. 36 við Eiríksgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. nóvember 2014 fylgir erindinu.
Stærðir: 481,3 ferm., 1.523 rúmm.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


516. fundur 2014
Hringbraut Landsp., Eiríksgata 36 - Bráðabirgða skrifstofuhúsnæði
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. nóvember 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja skrifstofurými til bráðabirgða, mhl. 42, úr gámaeiningum á þrem hæðum með valmaþaki við norðurhlið tengibyggingar milli E og G álmu Landspítalans á lóð nr. 36 við Eiríksgötu.
Stærðir: 481,3 ferm., 1.523 rúmm. Gjald kr. 9.500

Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið.
Samræmist deiliskipulagi.


802. fundur 2014
Hringbraut Landsp., Eiríksgata 36 - Bráðabirgða skrifstofuhúsnæði
Sótt er um leyfi til að byggja skrifstofurými til bráðabirgða, mhl. 42, úr gámaeiningum á þrem hæðum með valmaþaki við norðurhlið tengibyggingar milli E og G álmu Landspítalans á lóð nr. 36 við Eiríksgötu.
Stærðir: 481,3 ferm., 1.523 rúmm.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.