Hafnarstræti 17

Verknúmer : BN048484

801. fundur 2014
Hafnarstræti 17, Takmarkað byggingarleyfi
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi skv. grein 2.4.5. til að rífa skúra og hefja jarðvegsframkvæmdir, sjá erindi BN048060, á baklóð húss nr. 17 við Hafnarstræti.
Niðurrif: 225 ferm., 686,9 rúmm.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.