Þórunnartún 4

Verknúmer : BN048443

801. fundur 2014
Þórunnartún 4, Breyting á stálburðarvirki. Br. BN047985
Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktri viðbyggingu, sjá BN047985, þannig að burðarvirki breytist úr steypu í stál í hóteli á lóð nr. 4 við Þórunnartún.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


800. fundur 2014
Þórunnartún 4, Breyting á stálburðarvirki. Br. BN047985
Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktri viðbyggingu, sjá BN047985, þannig að burðarvirki breytist úr steypu í stál í hóteli á lóð nr. 4 við Þórunnartún.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.