Rauðarárstígur 41

Verknúmer : BN048396

801. fundur 2014
Rauðarárstígur 41, Breyting - 1.hæð
Sótt er um leyfi til að innrétta fimm hótelherbergi þar sem áður var verslun á jarðhæð húss á lóð nr. 41 við Rauðarárstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2014.
Gjald kr. 9.500

Synjað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2014.


514. fundur 2014
Rauðarárstígur 41, Breyting - 1.hæð
Á fundi skipulagsfulltrúa 24. október 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. október 2014 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta fimm hótelherbergi þar sem áður var verslun á jarðhæð húss á lóð nr. 41 við Rauðarárstíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2014.
Gjald kr. 9.500

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags.30. október 2014.

513. fundur 2014
Rauðarárstígur 41, Breyting - 1.hæð
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. október 2014 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta fimm hótelherbergi þar sem áður var verslun á jarðhæð húss á lóð nr. 41 við Rauðarárstíg.
Gjald kr. 9.500

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

799. fundur 2014
Rauðarárstígur 41, Breyting - 1.hæð
Sótt er um leyfi til að innrétta fimm hótelherbergi þar sem áður var verslun á jarðhæð húss á lóð nr. 41 við Rauðarárstíg.
Gjald kr. 9.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.