Lautarvegur 12

Verknúmer : BN048392

802. fundur 2014
Lautarvegur 12, (fsp) - Fjölbýlishús
Spurt er hvort leyft yrði að byggja þriggja hæða fjölbýlishús með kjallara og tvöföldum bílskúr á lóð nr. 12 við Lautarveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. nóvember 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. nóvember 2014.

Nei.
Samræmist ekki deiliskipulagi sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. nóvember 2014.


515. fundur 2014
Lautarvegur 12, (fsp) - Fjölbýlishús
Á fundi skipulagsfulltrúa 31. október 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. október 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja þriggja hæða fjölbýlishús með kjallara og tvöföldum bílskúr á lóð nr. 12 við Lautarveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. nóvember2014.

Neikvætt, með vísan í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. nóvember 2014.
Samræmist ekki deiliskipulagi.


514. fundur 2014
Lautarvegur 12, (fsp) - Fjölbýlishús
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. október 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja þriggja hæða fjölbýlishús með kjallara og tvöföldum bílskúr á lóð nr. 12 við Lautarveg.

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

800. fundur 2014
Lautarvegur 12, (fsp) - Fjölbýlishús
Spurt er hvort leyft yrði að byggja þriggja hæða fjölbýlishús með kjallara og tvöföldum bílskúr á lóð nr. 12 við Lautarveg.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.