Laugavegur 19-19B

Verknúmer : BN048351

798. fundur 2014
Laugavegur 19-19B, Breyting á gólfkóta
Sótt er um leyfi til breytinga á hæðakótum gólfa á 2. og 3. hæð viðbyggingar, sjá erindi BN047130, við hús á lóð nr. 19-19B við Laugaveg.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


797. fundur 2014
Laugavegur 19-19B, Breyting á gólfkóta
Sótt er um leyfi til breytinga á hæðakótum gólfa á 2. og 3. hæð viðbyggingar, sjá erindi BN047130, við hús á lóð nr. 19-19B við Laugaveg.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.