Sóleyjargata 11

Verknúmer : BN048319

798. fundur 2014
Sóleyjargata 11, Lóðarteikning, steyptir veggir
Sótt er um leyfi til að steypa lága veggi og tröppur á lóð og gera nýtt gönguhlið í steyptan vegg að Fjólugötu við einbýlishús á lóð nr. 11 við Sóleyjargötu .
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. október 2014.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


511. fundur 2014
Sóleyjargata 11, Lóðarteikning, steyptir veggir
Á fundi skipulagsfulltrúa 3. október 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. september 2014 þar sem sótt er um leyfi til að steypa lága beðveggi , steypa vegg inn á lóð við bílastæði, steypa þrep inná lóð niður í neðri hluta garðs og gera nýja gönguhlið í núverandi steyptan vegg á lóðarmörkum Fjólugötu megin á lóð nr. 11 við Sóleyjargötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. október 2014.
Gjald kr. 9.500

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

510. fundur 2014
Sóleyjargata 11, Lóðarteikning, steyptir veggir
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. september 2014 þar sem sótt er um leyfi til að steypa lága beðveggi , steypa vegg inn á lóð við bílastæði, steypa þrep inná lóð niður í neðri hluta garðs og gera nýja gönguhlið í núverandi steyptan vegg á lóðarmörkum Fjólugötu megin á lóð nr. 11 við Sóleyjargötu .
Gjald kr. 9.500

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.

796. fundur 2014
Sóleyjargata 11, Lóðarteikning, steyptir veggir
Sótt er um leyfi til að steypa lága beðveggi , steypa vegg inn á lóð við bílastæði, steypa þrep inná lóð niður í neðri hluta garðs og gera nýja gönguhlið í núverandi steyptan vegg á lóðarmörkum Fjólugötu megin á lóð nr. 11 við Sóleyjargötu .
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.