Laugavegur 17

Verknúmer : BN048284

797. fundur 2014
Laugavegur 17, Viðbygging
Sótt er um leyfi til breytinga á hæðakótum gólfa um 5-10 sentimetra og til að breyta fyrirkomulagi í starfsmannarými á 1. hæð í húsi á lóð nr. 17 við Laugaveg.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


796. fundur 2014
Laugavegur 17, Viðbygging
Sótt er um leyfi til breytinga á hæðakótum platna um 5-10 sentimetra og til að breyta fyrirkomulagi í starfsmannarými á 1. hæð í húsi á lóð nr. 17 við Laugaveg.
Gjald kr. 9.500
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.