Aðalstræti 6

Verknúmer : BN048229

797. fundur 2014
Aðalstræti 6, Endurnýja efstu hæð og þak
Sótt er um leyfi til að endurnýja efstu hæð og þak og innrétta sem hótelherbergi til viðbótar annarri hótelstarfsemi í húsinu á lóð nr. 6 við Aðalstræti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. september 2014 fylgir erindinu sem og samþykki meðeigenda.dags. 27. september 2014 og 3. október 2014.
Gjald kr. 9.500 + 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


796. fundur 2014
Aðalstræti 6, Endurnýja efstu hæð og þak
Sótt er um leyfi til að endurnýja efstu hæð og þak og innrétta sem hótelherbergi til viðbótar annarri hótelstarfsemi í húsinu á lóð nr. 6 við Aðalstræti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. september 2014 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


509. fundur 2014
Aðalstræti 6, Endurnýja efstu hæð og þak
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. september 2014 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja efstu hæð og þak og innrétta sem hótelherbergi til viðbótar annarri hótelstarfsemi í húsinu á lóð nr. 6 við Aðalstræti.
Gjald kr. 9.500

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

794. fundur 2014
Aðalstræti 6, Endurnýja efstu hæð og þak
Sótt er um leyfi til að endurnýja efstu hæð og þak og innrétta sem hótelherbergi til viðbótar annari hótelstarfsemi í húsinu á lóð nr. 6 við Aðalstræti.
Gjald kr. 9.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.