Hverfisgata 103

Verknúmer : BN048228

800. fundur 2014
Hverfisgata 103, Hótel - breytingar SV
Sótt er um leyfi til að breyta loftræsiristum á SV-gafli og stækka tæknirými vegna loftræsikerfis sbr. erindi BN047377 samþ. 15. júlí 2014 í hóteli á lóð nr. 103 við Hverfisgötu.
Stærðarbreytingar eru engar.
Gjald kr. 9.500

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


794. fundur 2014
Hverfisgata 103, Hótel - breytingar SV
Sótt er um leyfi til að breyta loftræsiristum á SV-gafli og stækka tæknirými vegna loftræsikerfis sbr. erindi BN047377 samþ. 15. júlí 2014 í hóteli á lóð nr. 103 við Hverfisgötu.
Stærðarbreytingar eru engar.
Gjald kr. 9.500

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.